Mikið afskaplega hljóta landsmenn að vera glaðir og graðir að bloggið mitt sé komið í lag... ég snerti mig tvisvar í tilefni dagsins.
Semsagt , eftir mikil tölvupóstsamskipti við central.is, þá er bloggið komið í lag og því ber að fagna. ... ég býð upp á sjeik og sleik niðrí bæ.... hverjir koma ????
En það sem hefur gengið á hjá manni ... hmm... maður er náttúrulega að fara að keyra síðustu vinnuvikuna á hótelinu frá og með morgundeginum , og get ég ekki sagt annað en að það er mikil gleði í hjarta mér að vera að fara í almennilega skrifstofuvinnu hjá Reiknistofu Bankanna ... þetta verður osom 2 da max.
En ég fór heim um "gervi-páskana" eins og ég kýs að kalla þá, en ég fór semsagt heim á Krók vikuna fyrir Páska, og var amma gamla svo næs í sér að leyfa mér að bruna með sig .. og við tókum fermingarbarnið hana Söru Rut með okkur ... greyið hún sagði ekki orð á leiðinni, því ég og Amma eru málglöð og töluðum mikið og fórum með vísur.
Á Króknum eyddi ég alveg merkilega miklum tíma með familíunni, en það hefur áður þekkst að þegar ég kem norður, þá er ég aðeins meira í því að vera með strákunum og vera fullur. .. en það var svosem skammtur af þeim skemmtilegheitum líka í farteskinu .. því ég var að spila á barnum á fimmtudagskvöldinu ásamt Helgi Sæmundi, og ákváðum við að skíra dúettinn okkar "Nigga Beinteins" og verður það nafn notað áfram í framtíðinni ... því við erum að tala um að ofurdúett er hér með stofnaður.
Föstudagurinn fór nú í eitthvað sjónvarpsgláp bara og um kvöldið "tókum við því rólega" eins og Siggi vildi orða það ... semsagt við urðum Shitfaced og vorum að drekka til hálf sjö um morguninn .. þegar við Siggi ákváðum að fara heim að kúra og skilja Simma eftir á Sjávarborg.. djöfull var það mikið flipp og skemmtilegt af okkur ... sorry Simmi.
Laugardagskvöldið var andsetið og við vorum fullir .. og skelltum smá drama í þetta líka, en við förum nú ekki út í það , enda algjör óþarfi.
Á Sunndeginum fór ég þunnur í fermingu og var í því hlutverki að hlusta á öskrin í Þórunni og mömmu og skjótast eftir hinu og þessu sem gleymdist hér og þar. .. mikil skemmtilegheit ... Sara fékk milljarða í fermingagjafir og allir voru sáttir. ... en þar sem það voru svona 80 kökur afgangs , þá bendi ég Króksurum á að kíkja til mömmu eða systur minnar í kaffi... þið fáið
"með því" .. það er nokkuð ljóst.
Á mánudaginn hoppaði ég í polla og ullaði á sólina ... fór einnig norður með Ömmu og við sungum alla leiðina suður í sólskinsskapinu og get ég ekki annað sagt en að það hafi verið notalegt að komast í rúmið sitt aftur í Kópavoginum .. það var alveg best ... í lest.
Ég vil þakka þeim sem voru skemmtilegir á Króknum fyrir góða skemmtun ... þið hin með leiðindin megið eiga ykkur !
Djössss stuð að vera kominn með bloggið aftur ...... jíha.....
Málsháttur dagsins: "Betri er snerting en erting"
Lag dagsins: Heysátan - Sigur Rós