Já komið þið nú sæl og blessuð (sagt með röddu Jóns Ársæls).
Ég var víst búinn að lofa ykkur nýrri bloggfærslu þegar ég kæmist niður fyrir
105 kílóin og þegar þetta er skrifað þá er ég í 104,5 kg .. svo hérna kemur það.
Spurningin er nú samt hversu mikið áhugvert hefur gerst á þessum tíma.
Ég hef allavega verið á fullu í körfunni með stórliðinu Glóa í 2.deildinni og gengið
hefur verið frekar slapppt og núna síðast vorum við að tapa fyrir Reyni í Sandgerði með alveg hellings mun , en bjarti punkutrinn hjá mér er sá að ég var að skora einhver 14 stig og rífa niður helling af fráköstum ,þannig að körfuboltaformið er allt að koma til ... en ég vil fara að sjá sigurleiki sem allra allra fyrst.
Það var náð að plata mig á djamm um síðustu helgi , þó svo að ég hafði lofað sjálfum mér ( eins og svo oft áður ) að vera edrú og heima hjá mér ... það endaði með skrautlegu djammi niður í bæ þar sem "ó svo margt" gerðist.
Helst ber að nefna það að ég og Jón Haukur vorum kallaðir "tómar sálir" , eða eitthvað í þá áttina, af stelpu sem á greinilega eitthvað óuppgert við okkur.. en við gátum svosem hlegið af því eins og svo mörgu öðru.
Hápunkturinn á þessu kvöldi var síðan sennilega eftirpartýið hjá Sunnu Mist. Ég, Silja, Diddi og Jón Haukur tókum taxa til hennar og vorum komin rétt á undan Sunnu, kærastanum hennar og einhverju fólki .... og svo læddumst við um gangana að reyna að hafa eins lágt og við gátum... og svo snérum við lyklinum og opnuðum hurðina... og þá var bara fullt af fólki þarna.
Ekki bara fullt af fólki ... fullt af leiðinlegu fólki. Þetta breyttist í frekar mikið drama þannig að við hringdum bara í vini mína hjá BSR og létum ná í okkur ... þetta var frekar dýrt taxakvöld by the way.
Við enduðum í póker heima hjá Óskari þar sem Stjáni stóð upp sem sigurvegari þrátt fyrir harða baráttu hjá mér og hlátursköst hjá Jóni Hauki yfir vitleysunni í mér í þessu pókerspili. .. ég er ekki sá allra klárasti í Póker semsagt.
Ég fór svo nánast beint í körfuboltaleik í Vesturbæinn eftir djammið og það beiluðu ALLIR á því að koma að horfa á mig spila... þannig að ykkur er EKKI boðið aftur að horfa á frábæra takta hjá okkur í Glóa takk fyrir takk.
Hmmm.....
Ég fór og hitti Gillz um daginn og fór aftur í fitumælingu sem kom alveg ljómandi vel út og var ég búinn að missa einhver 5,7% fituprósentu .. en hann sagði að það væri nýtt met hjá sér á fjórum vikum, því þeir allra hörðustu væru að ná af sér um svona 4% .. þannig að maður var sáttur við það. Hann smellti á manni þyngra prógrammi í ræktinni , því það þýðir víst lítið að staðna eitthvað í ræktinni ... maður keyrir sig bara áfram á geðveikinni.
En þetta er svona það helsta sem hefur á daga mína drifið...
Framundan er helgi sem ég að fara í jólagjafainnkaup , bíó, skauta og þrif.
Síðan kemur helgi eftir það sem ég er búinn að bíða heillengi eftir. Þá erum ég , Svandís , Biggi og Karó ( og reyndar Sunna Ósk líka) að fara á Krókinn að djamma. Ég var búinn að lofa að fara með Bigga og Karó (Biggi er semsagt að vinna með mér hjá RB og Karó er konan hans) á Krókinn og sýna þeim djammið ... og ef þið þarna Króksarar klikkið á djamminu þessa helgi (5.-6.des) þá verð ég ekki sáttur við ykkur.... þið fáið ekki EINN BLÁAN !
En mér finnst ég vera búinn að blogga nóg fyrir ykkur ..... næsta blogg kemur þegar ég kemst niður fyrir 100 kg .... það verður einnig gleðidagur, því ég hef ekki verið í tveggja stafa tölu síðan ég var í 10.bekk.... oh joy oh joy.
Kveðja.
Ykkar Binniam Shatner , Binnvaldur, Binn Diesel eða hvað sem þið viljið kalla mig.
OG ÞAÐ ER KOMIN MJÖG MIKILVÆG KÖNNUN HÉR Á SÍÐUNNI TIL HÆGRI.... TAKIÐI ÞÁTT !!!