Hugarórar Geðsjúklings
28.05.2009 22:29:53 / binni29

Lélegt

 ... jæja ... þetta var frekar léleg tilraun til að byrja að blogga aftur. .... það verður bara facebook í framtíðinni.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2009 03:36:39 / binni29

Á döfinni.

Sælir kæru lesendur.
_________________________________________________________________

Ég áttaði mig á því að þrátt fyrir að það sé mjög menningarlegt og gáfulegt að rita pistil um efnahagsástandið og fleira í þeim dúr, þá eru drykkju og sóðasögur betri...

Ég ætla samt ekki að fara nánar út í bústaðarhelgina, því það gætu verið ýmsir aðilar sem skoða þessa síðu, sem ég vil ekkert að viti um smáatriðin.

En það var semsagt heljarinnar fjör og ágætt að taka svona helgar með ágætis millibili . . þrátt fyrir að sunnudagurinn er alltaf erfiður, sérstaklega þar sem ég þurfti að vinna frá kl: 20:00 til 08:00 .. það var frekar erfið vakt og svaf ég alveg fram á kvöld á mánudeginum.

En sumarið er að koma krakkar... það þýðir að við ætlum að skemmta okkur ... ekkert krepputal hérna !

Um næstu helgi er ég að fara á árshátíð/partý hjá Bakarameistaranum, en ég fékk að fljóta með sem deitið hennar Guðdísar, enda þótti þetta upplagt , því að Jón Haukur fer með Siju og erum við auðvitað óslítanlegir við strákarnir.. hvað annað?. Stefnan er náttúrulega tekin á það að láta öllum illum látum á þessari árshátíð, sérstaklega þar sem enginn þekkir okkur Jón og getum við látið eins og hin verstu fífl... og ekki skemmir fyrir að þemað er "kúrekar" ... tilvalið þema til að vinna með. .. þið verðið bara að bíða eftir myndunum á facebook.

Ég er nánast kominn í sumarfrí á föstudagsmorguninn næsta klukkan 8 ... þarf reyndar að taka helgina eftir það, en það er nú bara næsturvaktir og ekki mikið að gerast í vinnunni þá, mikil rólegheit semsagt.

En ég verð í fríi út allan júní og smá í byrjun Júlí .. .og fæ svo vikufrí um miðjan júlí til að geta fagnað afmælinu hjá Jóni Hauki, en hann var búinn að lofa allsherjar húllumhæ og vonandi svíkur hann það ekki... annars var maður líka að heyra af einhverju fjörupartýi svei mér þá.... maður veit aldrei hvað maður gerir.

Síðan er maður að fara til Köben yfir langa helgi með Guðdísi, Svandísi og Guðnýju og er stefnan tekin á allsvakalega drykkju þar.... reyndar var planið hjá mér að vera 2 vikur úti , meðal annars í Svíþjóð, en það þurfti að breytast, með tilheyrandi kostnaði við breytingu á flugmiða og annað í þeim dúr... en maður er svo jákvæður að maður lætur ekki pening stoppa sig ... plús það að maður bíður spenntur eftir orlofsuppbót sem dettur inn með laununum þann 1.júní... sweeeeet.

Og já.... fólk er mikið að spyrja mig hvort ég sé ennþá í fjarþjálfun hjá Gillz, en ég er nú reyndar bara hættur hjá honum í bili ... ef ég skyldi fara að blása út aftur þá verð ég ekki lengi að senda honum skilaboð og segja honum að ég komi aftur í stíft prógram ... annars er maður ekkert mikið að stressa sig lengur, aðallega bara yfir því að reyna að halda þessu öllu saman skynsamlega , þó svo að óhollustuhelgar koma inn á milli.. .ég auglýsi þó eftir fólki til að hreyfa sig með mér í sumar, hvort sem það er fótbolti, karfa , göngutúrar, línuskautar eða hvað sem er.... reynum að vera flott á því í sumar saman krakkar !

Lag dagsins: For what it´s worth - Placebo   ( ég bíð með öndina í hálsinum eftir plötunni frá þeim .. .sem er væntanleg eftir nokkra daga ).

Kær kveðja.

Binn Binn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2009 02:49:57 / binni29

Káli Skans.

Nú ætla ég svo innilega að vona að lesendur þessarar síðu munu hópast aftur hérna inn og dúndra niður einhverjum athugasemdun, því annars er lítill tilgangur í þessu bloggi.

Með tilkomu facebook , þá hefur bloggaldan, sem tröllreið landanum hérna fyrir örfáum árum, lagst niður og bloggið nánast orðið að einhverri þráhyggju hjá moggabloggurum að keppast um að commenta um það hvort Jóhanna sé starfi sínu trú eða hvort að Rafael Benitez muni grenja út af einhverju fótboltatengdu .. .spennandi tímar.

Annars eru þetta spennandi tímar sem við lifum á. Allt að fara til fjandans með þessari fjármálakreppu .. og ef það var ekki nógu svart , þá er einhver Svínaflensa að fara að herja á heiminn , þó svo að ég sé mjög skeptískur á allar svona veikir hérna á landi.

Fjármálakreppan hefur nú svosem ekki komið við mig á neinn undarlegan hátt , ekki heldur kynferðislegan. Ég hef ekki dregið úr neysluþennslu minni neitt mikið .. og þá er ég að meina það að ég panta ennþá það sem mér sýnist á barnum .... engin einfaldur vodki fyrir mig takk.

Ég er að hugsa um að reyna að rita niður daglega pistla um eitthvað sem er mér hugfangið og sleppa öllum dónasögum um mig, sem hefur þó einkennt þetta blogg síðustu ár . . kominn tími til að þroskast aðeins kannski og vera vitsmunalegur í pistlum sínum ?

Kveðja að handan.
BinnBinn.
http://pic19.picturetrail.com/VOL1046/6193493/14155620/256232062.jpg

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.02.2009 20:16:21 / binni29

Flíng

Svíng svíng barble leee

kúdós ?


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2009 12:30:08 / binni29

PLÖGG

Ég er að spila í Hemma og Valda (Gamla Hljómalind) á Laugaveginum á morgu (Laugardag) klukkan 17:00 - 17:30.

Á undan mér er frábært band sem kallar sig The Friday Night Idols og á eftir mér er félagi minn frá Englandi sem kallar sig Kid Decker... mæli með að þið sjáið öll þessi þrjú atriði , fáið ykkur bjór og slakið á í kreppunni .

Sjáumst vonandi þar !



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2009 23:08:48 / binni29

Þetta blogg er um Jón Hauk

Jón Haukur er æðislegur. ... en það sem gerir Jón Hauk svona æðislegan eru draumórar hans og plön hans um framtíðina. ... ég leit á gömul blogg hjá honum og sá fullt af skemmtilegum hlutum sem hann ætlaði sér.... fór kannski ekki alveg eins og hann ætlaði sér stundum .. .en þetta er skemmtileg lesning .. gjörið svo vel :

24.10.2006

En ég er að fara í Stílistann :)

Byrja að fara á námskeiðin í næstu viku, og jááá ég veit að það hljómar virkilega samkynhneigt en það er hvortsemer alltaf verið að saka mig um það 
en er það samt ekki btw :) :) :) :)

23.3.2006:

Ég og mikki erum búnir að ákveða að við ætlum að taka nokkra daga í sumar og ferðast um landið og svona skoða hvern krók og kima af því, allir sem vilja vera með rétt upp hönd, verður feikna fjör og gaman :) :D :) :) :D

27.4.2006.

En ég er fara flýja ykkur í haust líklega ef að allt gengur upp :) :) : :)

.. okey ... þetta átti að verða miklu lengra, en Jón Haukur var bara ekki nógu duglegur að blogga..... samt krúttlegt ekki satt ?



» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2009 16:22:56 / binni29

Svona fór nú um msn-nafna keppnina

Besta msn-nafnið á árinu 2008 ???
Binn there , done that
10 atkvæði

Binndows 95
5 atkvæði

Binnjamín Þór
2 atkvæði

Binnalicious
7 atkvæði

Binnie Jones
2 atkvæði

Binnjamín Dúfa
4 atkvæði

Vinni í Binnunni
4 atkvæði

Binni í Bókabúðinni
5 atkvæði

Binndiana Jones
5 atkvæði

Binn Diesel
9 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 53

---------------------------------------------------------------------------------

Ég verð nú samt að viðurkenna að ég vildi að Binn Diesel hefði unnið þessa keppni , því ég átti ekki hugmyndina að "Binn there Done That" .. því það var hún Margrét Viðars sem stakk upp á þessu nafni , ég kom með öll hin nöfnin .. eeeen ... best nafnið sigraði engu að síður og verður spennandi hvað ég mun heita á msn á þessu ári... já svei mér þá.

En það sem er helst á baugi er að ég er loksins kominn inn í hinn fagra Bendover flokk , eftir margra ára tilraunir til að brjótast inn í þann flokk ... og mun ég sennilega vera duglegari að blogga þar... þannig að ég bendi ykkur á  :


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.01.2009 05:28:46 / binni29

Steingelt

Blogg er orðið svo steingelt fyrirbæri og því munuð þið bara vita hvað ég er að gera af mér í gegnum msn og í gegnum facebook ... því að facebook er náttúrulega lífið.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.12.2008 10:11:09 / binni29

Annállinn

Áramótaannáll fyrir árið 2008.

 

Árið 2008 var merkilegt á marga vegu, en einhvern veginn grunar mig að ég eigi eftir að rita um fyllerí mestmegnis.  Í ársbyrjun var ég að vinna á Hótel Loftleiðum og í Vínbúðinni og átti ég svosem ekki eftir að endast þar lengi, en það var ágætis vitleysa á meðan það entist.

Eftir að hafa unnið á áramótunum og á nýársfögnuði fræga fólksins á Loftleiðum þar sem ég hitti meðal annars Quintin Tarantino og Eli Roth og spjallaði aðeins við þá, þá fannst mér greinilega kærkomið að fá mér í glas á einhverjum tímapunkti í mánuðinum sem endaði með einhverja blackout fylleríi á Hressó.

Í Febrúar var haldið eitthvað fyndnasta búningapartý sem sögur fara af á Freyjugötunni á Króknum heima hjá Jóni Hauki og co. Það var lagður mikill metnaður í búningana þetta árið og sjálfur fór ég klæddur sem einhvers konar samsuða af Marilyn Manson og stelpunni úr The Ring. Búningur kvöldsins var án efa búingur Adda Pé, þ.e , seinni búningur hans þetta kvöld, eða hinn frábæri Awesome-o búningur, sem átti eftir að gera mikla lukku .. þó svo að það hafi endað með því að ég stórslaðist á nefi eftir eitthvað högg frá Sabbó. Gott kvöld engu að síður.

Í febrúar kom einhver hræðileg helgi á hótelinu og eftir hana var ákveðið að skella sér til Amsterdam, því ég gat nýtt mér starfsmannaverð Icelandair og skelltum við Andri okkur til höfuðborgar Hollands og er ekki hægt að segja annað en að sú ferð hafi verið skrautleg. Ferðin var reyndar tekin upp á video en það video verður víst aldrei sýnt almenningi til að vernda saklausar sálir og það litla orðspor sem við eigum eftir.

Í mars sagði ég upp á Hótel Loftleiðum, enda búinn að fá mig fullsaddann á eintómum næturvinnum og lélegu kaupi og byrjaði ég í lok mánaðarins hjá Reiknistofu Bankanna og er ég ennþá þann dag þar og líkar vel. Í mars mánuði spilaði dúettinn „Nigga Beinteins“ á barnum , en hann samanstendur af mér og Helga Sæmundi og er ég alveg viss um að við eigum eftir að endurtaka þennan leik aftur. Ég byrjaði í einhverri gervi-megrun í mars mánuði sem átti ekki eftir að endast lengi.

Í aprílmánuði var barátta Hillary Clinton og Barack Obama mér ofarlega í huga, samkvæmt blogginu , en einnig voru mótmæli vörubílstjóra einni í deiglunni , en annars var maður bara alltaf upptekinn við að vinna og vera duglegur á nýja vinnustaðnum.

Í maí spilaði ég í Féló fyrir krakkana og var eitthvað smávegis á Króknum , eða réttara sagt í enda apríl/byrjun maí. Laugardagurinn 24.maí fer einnig í sögubækurnar sem sá dagur þegar eitt mesta rústpartý sem hefur verið haldið í Kópavoginum , var haldið í Kjarrhólma 24 og ég er ekki frá því að fólk hafi verið svakalega andsetið.

Sumarið í heildina fór í alveg hræðileg fyllerí , þar sem ber helst að nefna eina skiptið sem grillið mitt var notað og Silja drapst í sófanum og þegar við httum Írana niður í bæ og buðum þeim með okkur heim... einnig líka þegar Jón Haukur og Silja reyndu að ræna dvergi með okkur heim. Sumarið fór líka í ógeðslegt mataræði og ég er kannski að ýkja svolítið þegar ég segi að það hafi verið ruslfæði og pizzur meiri hluta daganna í vikunni og hollustan var látin fjúka fyrir óhollustuna og áfengið. Þannig að maður hafði það gott um sumarið.

Fór einnig á leiðinlegt ættarmót og spilaði á Acoustic Melodica Festival á Café Rosenberg sem var alveg fáránlega skemmtileg lífsreynsla og fékk ég Egil og Davíð Jóns, félaga mína, til að spila með mér á þeim tónleikum og heppnaðist það frábærlega , þrátt fyrir smá tæknivandamál í lokin á tónleikunum... rokk og ról.

Um veturinn var farið í tvær sumarbústaðaferðir sem voru báðar alger snilld en hlýtur þó seinni ferðin að standa upp úr, hvað varðar myndirnar og bullið sem átti sér stað.

En í október kom að vendipunkti í lífi mínu þegar ég ákvað að skella mér í Fjarþjálfun hjá Gillz  og árangurinn lét ekki á sér standa. Reyndar var ég byrjaður að byrja í hollustunni í ágúst/september og þegar þetta er skrifað eru rúmlega 26 kg fokin af og allavega alveg 10-15 kg eftir í baráttunni við aukakílóin.

Jólin voru róleg og var ég að vinna öll jólin sem og um áramótin og bíð ég bara eftir nýju ári sem mun nú byrja strax á merkilegum atburði því ég ákvað að skrá mig í Idolið og verður forvitnilegt að sjá hvað kemur út úr því ... maður á náttúrulega engan séns í Aron Pálma ,samkvæmt honum , en já ... þetta verður skondið.

Þið takið kannski eftir því að ég fer ekkert út í smáatriði á fylleríum og ástarlífið hjá manni ... en ég ætla að sleppa því í þessum annál , því það eru spennandi tímar framundan í þeim efnum ... ekki spurning.

Ég vil enda þetta á því að óska ykkur góðs Kreppuárs 2009 og vonast ég til að geta hitt ykkur sem flest og oftast.

 

Kær kveðja.

Binni.

 

P.s – Skoðanakönnunin er að renna út eftir 2 daga , þannig að þið verðið að gefa ykkar uppáhalds nafni ykkar atkvæði.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 23:36:49 / binni29

Eartha Kitt

Hvíldu í friði Eartha Kitt .... þín verður sárt saknað , en verður þó minnst í bröndurum mínum í framtíðinni.




» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2008 17:23:01 / binni29

Jól

Jólin eru víst á næsta leyti og því er ekki seinna vænna en að óska öllum aðdáendum síðunnar gleðilegra jóla og baráttukveðjur á nýju kreppuári á árinu 2009.

En talandi um jólin ... þá kemur helgi annan í jólum og 27.des og langar mig að spyrja fólk hvort það verði í bænum þá ? Því að ég ætla að gera mér glaðan dag allavega á laugardagskvöldið og væri gaman að sjá kunnugleg andlit á djamminu. Látið mig vita !!

En já... ég ætla að halda áfram að vera í vinnunni á jólunum ... hér C fjör !

Jólakveðjur.

Binni Jólasveinn.

Lag dagsins: Jólamaðurinn - Geir Ólafs.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 17:27:19 / binni29

SVONA gaman var á Króknum um helgina !!!














.... svo er taka tvö á laugardaginn !!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 17:25:42 / binni29

3.des - 103,9 kg



» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 10:37:07 / binni29

Já sæl...

Já komið þið nú sæl og blessuð (sagt með röddu Jóns Ársæls).

Ég var víst búinn að lofa ykkur nýrri bloggfærslu þegar ég kæmist niður fyrir
105 kílóin og þegar þetta er skrifað þá er ég í 104,5 kg .. svo hérna kemur það.

Spurningin er nú samt hversu mikið áhugvert hefur gerst á þessum tíma.

Ég hef allavega verið á fullu í körfunni með stórliðinu Glóa í 2.deildinni og gengið
hefur verið frekar slapppt og núna síðast vorum við að tapa fyrir Reyni í Sandgerði með alveg hellings mun , en bjarti punkutrinn hjá mér er sá að ég var að skora einhver 14 stig og rífa niður helling af fráköstum ,þannig að körfuboltaformið er allt að koma til ... en ég vil fara að sjá sigurleiki sem allra allra fyrst.

Það var náð að plata mig á djamm um síðustu helgi , þó svo að ég hafði lofað sjálfum mér ( eins og svo oft áður ) að vera edrú og heima hjá mér ... það endaði með skrautlegu djammi niður í bæ þar sem "ó svo margt" gerðist.
Helst ber að nefna það að ég og Jón Haukur vorum kallaðir "tómar sálir" , eða eitthvað í þá áttina, af stelpu sem á greinilega eitthvað óuppgert við okkur.. en við gátum svosem hlegið af því eins og svo mörgu öðru.
Hápunkturinn á þessu kvöldi var síðan sennilega eftirpartýið hjá Sunnu Mist. Ég, Silja, Diddi og Jón Haukur tókum taxa til hennar og vorum komin rétt á undan Sunnu, kærastanum hennar og einhverju fólki .... og svo læddumst við um gangana að reyna að hafa eins lágt og við gátum... og svo snérum við lyklinum og opnuðum hurðina... og þá var bara fullt af fólki þarna.
Ekki bara fullt af fólki ... fullt af leiðinlegu fólki. Þetta breyttist í frekar mikið drama þannig að við hringdum bara í vini mína hjá BSR og létum ná í okkur ... þetta var frekar dýrt taxakvöld by the way.
Við enduðum í póker heima hjá Óskari þar sem Stjáni stóð upp sem sigurvegari þrátt fyrir harða baráttu hjá mér og hlátursköst hjá Jóni Hauki yfir vitleysunni í mér í þessu pókerspili. .. ég er ekki sá allra klárasti í Póker semsagt.

Ég fór svo nánast beint í körfuboltaleik í Vesturbæinn eftir djammið og það beiluðu ALLIR á því að koma að horfa á mig spila... þannig að ykkur er EKKI boðið aftur að horfa á frábæra takta hjá okkur í Glóa takk fyrir takk.

Hmmm.....

Ég fór og hitti Gillz um daginn og fór aftur í fitumælingu sem kom alveg ljómandi vel út og var ég búinn að missa einhver 5,7% fituprósentu .. en hann sagði að það væri nýtt met hjá sér á fjórum vikum, því þeir allra hörðustu væru að ná af sér um svona 4% .. þannig að maður var sáttur við það. Hann smellti á manni þyngra prógrammi í ræktinni , því það þýðir víst lítið að staðna eitthvað í ræktinni ... maður keyrir sig bara áfram á geðveikinni.

En þetta er svona það helsta sem hefur á daga mína drifið...

Framundan er helgi sem ég að fara í jólagjafainnkaup , bíó, skauta og þrif.

Síðan kemur helgi eftir það sem ég er búinn að bíða heillengi eftir. Þá erum ég , Svandís , Biggi og Karó ( og reyndar Sunna Ósk líka) að fara á Krókinn að djamma. Ég var búinn að lofa að fara með Bigga og Karó (Biggi er semsagt að vinna með mér hjá RB og Karó er konan hans) á Krókinn og sýna þeim djammið ... og ef þið þarna Króksarar klikkið á djamminu þessa helgi (5.-6.des) þá verð ég ekki sáttur við ykkur.... þið fáið ekki EINN BLÁAN !

En mér finnst ég vera búinn að blogga nóg fyrir ykkur ..... næsta blogg kemur þegar ég kemst niður fyrir 100 kg .... það verður einnig gleðidagur, því ég hef ekki verið í tveggja stafa tölu síðan ég var í 10.bekk.... oh joy oh joy.

Kveðja.

Ykkar Binniam Shatner , Binnvaldur, Binn Diesel eða hvað sem þið viljið kalla mig.

OG ÞAÐ ER KOMIN MJÖG MIKILVÆG KÖNNUN HÉR Á SÍÐUNNI TIL HÆGRI.... TAKIÐI ÞÁTT !!!


» 14 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 15:25:59 / binni29

Alveg að fara að koma blogg frá mér...

en á meðan læt ég enn eina fyrir/eftir mynd...




» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 31
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 140620
Dagsetning
21. mars 2010